Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

vinr og vandamenn

Amsterdam og Namibia

innflytjenda /Migration tenglar

Ymsir tenglar

ég að bloggaHulda Guðrún Gunnarsdóttir

já ég er ekki dugleg að blogga. Þannig hér kemur smá uppdate af sjálfum mér.

ég er búin að vera í löngu sumarfrí. Fór til Frakklands í vinnuferð, fór að skoða skóla. Það var mjög áhugavert. Síðan kom ég heim í nokkra dag og fór til USA í brúðkaup. En hún Christy sem var með mér í Amsterdam var að gifta sig. Og mér var boðið. Þannig að ég ákvað að nota ferðina og heimsækja Kirin í leiðinni. Hún býr í Washington DC og þar var ég í nokkra dag síðan fór ég til Milwaukee eða til  Shebogyan  Þar býr fjölskylda Christyar en Christy sjálf býr í Hollandi. Þetta var mjög skemmtileg ferð. Síðan ég kom heim þá er ég lítið búin að  vera að gera annað að fara í sund, liggja í sólbaði, laga til heima, að vísu er ég búin að fara eina útileigu með Kötu.  jæja ekki meira bili  kíkið á myndirnar

Vinnuferð til Barcelona og FrakklandHulda Guðrún Gunnarsdóttir

Endilega kíkið á myndirnar frá Spánarferðinni. Þær eru hér hægra megin á síðunni, fullt af myndum frá ferðalaginu mínu. Njótið vel

Nýjar myndirHulda Guðrún Gunnarsdóttir




Nýjar myndir


















Ég blogg seinna

New Pictures -nýjar myndir -jól myndir -christmas pictureHulda Guðrún Gunnarsdóttir


New Pictures -nýjar myndir -jól myndir -christmas picture



Glottandi












Svalur












Kirin and Alexander visit in Iceland- New pictures in the albumHulda Guðrún Gunnarsdóttir

New Pictures -nýjar myndir

















MYNDIR FRÁ MONTRÉAL,QUEBEC. NEW PICTURES FROM MONTRÉALHulda Guðrún Gunnarsdóttir

Ég er búin að setja nokkrar nýjar myndir inn, kíkið á þær.


 

 


There are new pictures in the album (from Montréal) . check it out.

NÝJAR MYNDIR -NEW PICTURESHulda Guðrún Gunnarsdóttir



Ég er búin að setja nokkrar nýjar myndir inn, kíkið á þær. There are new pictures in the album. check it out.

myndir og smá uppfærslaHulda Guðrún Gunnarsdóttir



Ég hef lítið nennt að blogga síðustu mánuði. Það sem er að frétta af mér er að ég er að fara kenna í Lágafellsskóla næsta haust. Ég er að fara kenna 2.bekk, svo ensku í 8.bekk. Þetta er eftir að verða erfitt, áhugavert en jafnt krefjandi. Gaman að prófa þetta. Og ef fólk heldur að ég sé lengi að keyra þangað, þá er það ekki satt en það tekur mig um 20 mín að keyra því þetta er nánast bein leið frá Grensás, eða engin ljós eftir það.


Hvað er ég búin að vera gera síðustu vikur, en það er ýmislegt frá því að liggja í sólbaði, vinna í móttökum, passa frænda eða bara slappa af en síðustu daga er ég búin að liggja í flensu, ég hef ekki verið svona veik lengi en nóg með það.

Það hefur verið mikið að gera í samkvæmislífinu, 1 gæsun eða ég fékk að vera með að gæsa Þórunn Huldu frænku. Svo er maður búin að fara í 2 brúðkaup (fjölskyldubrúðkaup) svo það er búið að vera nóg að gera í þessari fjölskyldu.

 

 

 



Maður er ekki bara búin að vera í brúðkaupum en maður hefur einnig reynt að hitta fólk fólk sem býr úti heimi (Ástralíu og Tékkland), tekur dálítin tíma að koma fólki saman.

Svo er maður búin að fara í eitt barnaafmæli og tvö 30. afmæli, eitt útskriftaboð. Og ekki má gleyma eitt 40 afmæli á Akranesi, til hennar Gullu, hans Villa sem var yfirmaðurinn minn í Namibiu.

 



 

Svo hef ég verið að passa litla frænda, svona aðeins eyða tímanum í sumarfríinu áður maður fer að kenna. Hann er ekkert smá mikið krútt. Voðalega sætur



 

já svo er ég að fara til Montréal, hitta skiptinemafjölskylduna mína, (ég fór með AFS ), og skemmtilega við það að mamma kemur með. Það verður örugglega pínu skrýtið að hafa hana þarna en það verður líka skemmtilegt að sýna henni staði sem ég eyddi heilu ári í eða á, t.d skólann minn og bæinn minn. En ég bjó í úthverfi Montréalar




 

 


 


Við verðum í tvær vikur og fljúgum beint til Montréal. Það var líka ástæðan að við séum að fara er að núna er hægt að flúga beint og það kostar ekki meira en 35.þúsund krónur með heimsferðum . Áður þurfti maður að fara í gegnum USA og það er hálf leiðinlegt núna, öll þessi öruggisgæsla
FýldurEinnig er þetta miklu ódýra núna en áður því áður var maður kannski að borga 60 til 70 þúsund. já við fórum eftir 3 vikur og þetta er eftir að vera skemmtilegt og ég hlakka mikið til þessara ferðar.

æja þá verður það ekki meira í bili.Svalur



Fleiri video frá NamibiuHulda Guðrún Gunnarsdóttir




Bætti við tveim videoum, eða brotum frá Namibiu. Eru kannski ekkert sérstaklega góð en gerði þetta í gegnum Youtube, því ég átti í erfiðleikum með að setja video beint hér inn.


Youth Festival in Windhoek


Kindergarten in Luderitz

Heimildarmynd um AfganistanHulda Guðrún Gunnarsdóttir



Ástæðan fyrir því að ég opnaði bloggsíðu var fyrst og fremst að blogg um reynslu mína í Namibíu. Í byrjun var það aðal ástæðan en núna hef ég aðallega verið að blogg um hvað ég er að gera á dagin. Ég hef ekki mikið verið að blogg um pólitik eða annað "heit" umræðu efni.
Og held að ég mun ekki breyta því strax, kannski ætti maður að gera það, að tjá sig um hvað maður finnst. Það kannski kemur með tímanum.
Nóg með þessar pælingar, en síðasta fimmtudag þá fór ég á áhugaverða bíó sýningu, en Mannfræðifélagið var að sýna heimilda mynd um lífið í Kabúl eða eins og hér segir í fréttatilkynningunni



Bandaríski mannfræðingurinn dr. David B. Edwards hefur stundað rannsóknir í Afganistan allt frá árinu 1978 fram til dagsins í dag. Edwards er væntanlegur til landsins í boði Mannfræðifélagsins og mun verða viðstaddur sýningu heimildarmyndar sinnar Kabul Transit. Myndin hefur verið valin á fjölmargar kvikmyndahátíðir og fengið fjölda lofsamlegra dóma og þykir draga upp mjög mannlega sýn á ástandið í Kabúl eftir fall talibanastjórnarinnar. Edwards mun ræða við áhorfendur að sýningu lokinni.
Nánari upplýsingar um Kabul Transit eru á: http://www.kabultransit.net/




Þetta var mjög áhugverð mynd og það voru einnig mjög áhugaverðar umræður eftir myndina. Mér fannst mjög áhugavert að heyra sjónarmið og skoðarnir kvenna sem stunda nám við háskólann í Kabúl.

Eins og oft áður nefndu þær að allar breytingar verða að koma innan frá, frá þeim sjálfum og samfélaginu. Og að samfélagið verður að vera stærsti þátttakandi í þessum breytingum sem í allra ákvörðuntöku um hvað sé best fyrir þeirra eigið samfélag. Sem að mínu mati við gleymum stundum, sérstaklega þegar við erum aðstoða og gefa ráð til "þróunarlanda"


Að vísu fannst mér, vanta dálítið í umræðuna sem var eftir myndina um stöðu kvenna þarna. Samt sem áður var þetta mjög áhugavert. Maður þarf að vera duglegri að fara á svona heimildamyndir.



 


Síða 1 af 5

Teljari

Gagnasafn